Tenglar

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Tilhlökkun

31. desember 2007 klukkan 10:57
Ég hlakka til að koma heim og komast í venjulega sturtu... venjulega sturtu þar sem er hægt að fá bæði heitt og kalt vatn á sama tíma.  Ekki annað hvort bara heitt vatn, eða bara kalt vatn.... eða eins og tilfellið er núna þegar ég hef aldrei verið með skítugara hár... Ekkert vatn!!!!!

Jább, einhverra hluta vegna virðist fólki bara finnast allt í lagi að taka allt vatn af vistinni í nokkra klukkutíma í viku. 
Eva Balagan
1 athugasemd

Söknuđur

30. desember 2007 klukkan 12:41

Nú á ég ekki nema tæpa viku eftir í Ísrael.  Tvö próf búin og ég er að rembast við að skrifa tvær ritgerðir á mettíma á sama tíma og ég er að læra fyrir síðasta lokaprófið sem verður á fimmtudaginn.  Vorum svo heppin að prófesorinn ákvað að gefa okkur frí á Nýársdag og fresta prófinu um tvo daga.  Það er bara svo erfitt að einbeita sér þegar veðrið er svona gott.  Er búin að sitja út á svölum í allan dag að reyna að lesa mér til um kynlíf Gyðinga og matarvenjur þrátt fyrir að vera hálf blinduð af geislum sólarinnar.  Þess vegna er ég núna sest inn.  Fór að hugsa um það að núna á ég bara nokkra daga eftir.  Á morgun er gamlárs... engin hátíðarhöld hérna þar sem áramótin þeirra voru í september.  Vei.  Annars er mér boðið í mat til Nínu og Koby þar sem nýja árinu verður fagnað :)  Eða bauð ég mér í mat til þeirra? Ég man það ekki.

Ég er ekki frá því að ég eigi eftir að sakna Mirjam mikið.  Skrítið að búa með annarri manneskju í einu herbergi í hálft ár og svo allt í einu er það bara búið.  Enn meira á ég eftir að sakna þess að geta ekki heimsótt Nínu og fjölskyldu, finnst ég hafa gert of lítið af því.. fáránlegt hvað tíminn hleypur frá manni.  Ég á líka eftir að sakna Tel Aviv, sólarinnar og dagsljósins, menningarinnar og mannlífsins.  Sérstaklega á ég eftir að sakna þess að geta ekki farið á föstudagsmorgnum á markaðinn rétt fyrir Shabbat.  Ég á meira að segja eftir að sakna ruddaskap Ísraela... að bíða í röðum á ég ekki eftir að sakna.

Jæja, nú er ég hætt áður en ég fer að væla... býst ég við að kveðjustundin verði jafn dramatísk og fyrir 6 árum. 

Eva Balagan
Engin athugasemd

Gleđileg jól...

25. desember 2007 klukkan 14:28
... til ykkar allra frá Landinu helga...

Fór í gærkvöldi til Nínu og fjölskyldu og hélt upp á aðfangadagskvöld með þeim.  Yndisleg kvöldstund í alla staði og á borðinu var alvöru íslenskt lambalæri.  Það gerist ekki betra. 

Þegar ég kom heim til þeirra fann ég í fyrsta skiptið fyrir jólunum, skreytt tré og jólaskraut í stofunni :) Quality street og jólasmákökur.  Ég kom ekk heim fyrr rúmlega eitt í nótt og nú er ég að rembast við að reyna að læra Islam fyrir prófið á morgun.... ekki alveg það sem maður vill vera að gera á jóladag. 

Fór í skólann í morgun og fjallaði fyrirlesturinn í Gyðingatímanum um kynlíf Gyðinga og brúðkaupssáttmálann.  Mjög áhugavert.  Best finnst mér samt að eftir að glasið er brotið og búið að gefa hjónin formlega saman eru þau leidd af vitnum í herbergi þar sem þau fá að snerta hvort annað í fyrsta skiptið.  Þar eiga þau að setja punktinn yfir i-ið í brúðkaupsathöfninni - karlinn á að gera konuna ólétta á meðan gestirnir bíða þolinmóðir fyrir utan herbergið eftir að brúðhjónin ljúki sér af. 

Þegar hjónakornin fara svo að lifa saman eru ýsmar fleiri reglur í gang.  Á meðan konan er á blæðingu og í 7 daga á eftir má eiginmaður hennar ekki snerta hana.  Þau mega ekki heldur snerta sama hlutinn á sama tíma.  Eins og t.d. ef að konan eldar fyrir manninn sinn og setur matinn á diskinn hans, þá má hún ekki rétta honum diskinn heldur verður að leggja hann á borðið fyrir framan hann.  Draga þarf rúmin í sundur í þessa 12 daga í mánuði því ekki má hætta á að hjónin rekist í hvort annað í svefni og svo mætti lengi telja.



Eva Balagan
Engin athugasemd

Ţorláksmessa

23. desember 2007 klukkan 10:37
Í dag er víst Þorláksmessa.  Jólabarnið er búið að vera að reyna að koma sér í jólaskap undanfarna daga en hefur lítið gengið.  Í dag ákvað ég að skella jólalögum á fóninn og þrífa íbúðina svo það verði nú hreint í kringum mig þrátt fyrir prófalesturinn sem stendur yfir öll jólin.  Eitthvað er samt ekki að ganga þar sem andinn er ekki kominn yfir mig ennþá.  Gyðingurinn situr út á svölum í sólbaði, held að hitinn nái hátt í 30°C og "White christam", "Let it snow" og "Þú komst með jólin til mín" eru ekki alveg að passa núna.  Ef einhver á lagið "Aleinn á jólunum" þá má sá hinn sami endilega senda mér það.  Gæti verið að það komi mér í gírinn.

Annars hef ég plön fyrir Þorláksmessukvöld.  Ætla að hætta að læra snemma, fara í jólasturtu ef eitthvað vatn verður í krönunum og skella mér í mollið þar sem eftir-Hanukah útsölurnar eru í gangi og kaupa mér jólagjöf.  Gjöfin frá fjölskyldunni er víst föst í Danmörku og efast ég um að hún nái hingað fyrir morgundaginn.
Eva Balagan
10 athugasemdir

Jólasveinar

21. desember 2007 klukkan 12:58
Ég hef nokkuð oft minnst á það við Mirjam að á Íslandi eru jólasveinarnir 13 talsins og að 13 dögum fyrir jól setji Íslendingar skóinn sinn út í glugga.  Dagleg vakna þeir upp við glaðning frá jólasveininum sem kom þá nóttina og því nær sem dregur jólum því veglegri verður gjöfin.  Þessar ítrekuðu tilraunir mínar til að koma skilaboðunum settlega til hennar hafa ekki borið árangur ennþá, jafnvel þrátt fyrir að ég hafi nokkrum sinnum sett skóinn minn út í glugga og hóstað hátt og hrisst skóinn vel í áttina til hennar á meðan.

Hún segir að jólasveinar hafi ekki tíma til að ferðast til Gyðingalandsins, að kristnir eigi ekki að eyða tíma sínum í kringum hina útvöldu þjóð.
Eva Balagan
Engin athugasemd

Jólahvađ...

20. desember 2007 klukkan 16:35

Þegar erfitt er að finna jólin þá býr maður þau til sjálfur. 

Um daginn var ég svo heppin að fá að vera með Daníel og Keren um helgi á meðan Nína og Koby skelltu sér norður.  Ég er ekki frá því að þetta hafi verið ein besta helgin mín hingað til.  Er búin að sakna barnanna mikið síðastliðin ár og var fortíðarþráin uppfyllt þessa helgi þegar ég fór í au-pair fötin í tvö daga.  Tókum við okkur til og bökuðum jólasmákökur.  Ekki piparkökur heldur súkkulaðibitakökur þar sem þekking mín á kökuuppskriftum nær ekki út fyrir þessa einu jólakökusort.  Börnin voru þó með það á hreinu að allar piparkökur væru jólakökur og allar jólakökur væru piparkökur.  Því voru formin dregin fram og súkkulaðibitakökurnar tóku á sig hinar ýmsu útlínur spendýra.  þegar draga átti út liti og pensla tókst mér að stinga upp á einhverju öðru og betra að gera.  Leist mér ekki alveg á í hvaða átt hlutirnir stefndu. 

  

Annað sem við gerðum þessa helgi var að fara í keilu þar sem ég tapaði, í báðum leikjunum.  Keren er 7 ára og Daníel er 11 ára.  Tókst mér aftur að vinna mér inn titilinn klúðraði kvöldsins þegar kemur að keilu.  Daníel var þó ekki jafn sáttur við tapið og ég þegar hann sá fram á að systir sín myndi vinna seinni leikinn.  Um kvöldið var kveikt á Hanukah ljósunum og Berlínarbollur borðaðar með bestu list.

4 dagar til jóla.... ég veit ekki alveg hvað mér finnst um það.

Eva Balagan
Engin athugasemd

Pyntingar og jólin

18. desember 2007 klukkan 13:11
Ég er í námskeiði sem ber heitið "Ethics of Terror", þessir tímar eru á mánudögum frá klukkan 16:00-20:00.  Efnið síðustu tvær vikurnar var pyntingar og hefur verið mjög áhugavert að sitja þá fyrirlestra. 

Þar sem ég fer í mat til Nínu næstkomandi mánudagskvöld og sama kvöld er síðasti tíminn í námskeiðinu og afhending heimaprófsins ákvað ég að láta prófessorinn vita að ég gæti ekki mætt.  Á sama tíma kom Þjóðverjinn til hennar til að láta hana vita að hún gæti því miður ekki mætt heldur þar sem hún hefði plön fyrir aðfangadagskvöld.  Kennarinn sætti sig við það en sagðist eiga eftir að sakna okkar þar sem næsti tími á að vera umræðutími þar sem umræðunni á aðallega að vera beint að okkur "kristnu" nemendunum.  Hvernig hinn kristni maður lítur á pyntingar. Ég efast um að nokkur af þeim fjórum nemendum sem falla í þann hóp eiga eftir að mæta. 

Þó svo að ekki sé gaman að eyða jólunum í Ísrael þá er hægt að brydda upp á þau með því að eyða aðfangadagskvöldi í dimmri og kaldri skólastofu og ræða pyntingar.



Var himinlifandi um helgina, fór á túristabarinn og þar var alvöru jólatré, með ljósum og skreytt.  Ég er ekki frá því að tár hafi fallið.  Ég sakna jólanna.
Eva Balagan
3 athugasemdir

Breyting á uppáhalds

09. desember 2007 klukkan 16:01
Uppáhaldsorðið mitt hefur verið Balagan í nokkur ár.  Fyrir nokkrum dögum breyttist það.... þegar ég heyrði Al-HammmDalala vissi ég að þarna væri komið nýtt uppáhalds.  Al-HammDalala... Al-HammmDalala...  það er svo gaman að segja þetta, sérstaklega þegar æfing er komin á arabíska hreiminn.  29 dagar í að ég kem heim. 

Note to self:  ekki flytja heim frá útlöndum í Janúar.  Jólin nýbúin og það eina sem tekur á móti manni er vetrarharkan og myrkrið.   

Al-Hammmdalala.
Eva Balagan
4 athugasemdir

ChanuKah

05. desember 2007 klukkan 13:12

Hannukah byrjaði í gærkvöldi og stendur yfir í 8 daga með tilheyrandi hátíðarhöldum.  Allir helgidagar Gyðinga snúast mikið um mat nema Yom Kippur þegar fastað er, þá er bara borðað mikið daginn fyrir og daginn eftir.  Á Hanukah eru það Berlínarbollur með sykri og sultu og aðrir hlutir sem eru djúpsteiktir í olíu.  Hefur eitthvað að gera með kraftaverk og Kosher olíu sem átti að endast í nokkrar klukkustundir en eldurinn logaði í 8 daga.  Eitthvað er ég að læra hérna úti.

Annars eru kennararnir búnir að vera í verkfalli síðan skólaárið byrjar.  Allar deildir nema okkar.  Í dag var þó tekið upp á því að loka öllum hliðum inn í Háskólann og því voru ekki tímar í dag (ekki er hægt að komast inn á skólalóðina nema að fara í gegnum öryggishlið þar sem er leitað í töskum - kannski eru öryggisverðirnir líka komnir í verkfall).  Notaði ég tækifærið og fórí mollið, verslaði jólagjafir og pakkaði inn. 

Annars var besti öryggisvörðurinn okkar hérna á heimavistinni rekinn í síðustu viku.  Hann var víst rekinn fyrir að tala of mikið við nemendur og íbúa.  Hann átti það líka til að hleypa fólki inn án þess að taka frá þeim persónuskilríki á meðan á heimsókninni stendur og einstaka sinnum leyfði hann fólki að gista þó svo að ekki hefði verið sótt um það með fyrirvara.  Hans verður sárt saknað. 

Eva Balagan
Engin athugasemd

Skrítin jól

30. nóvember 2007 klukkan 10:47
Próftaflan er komin og verða jólin vægast sagt öðruvísi í ár.  Á aðfangadag er ég í skólanum frá klukkan 08:00-20:00, á jóladag frá 08:00-14:00 og á annan í jólum frá 08:00-12:00.  Prófin byrja 27. desember og fer ég í tvö próf þann dag.  Þriðja prófið mitt verður 30. desember.  Fjórða verður á Gamlársdag og það síðasta fellur á Nýjársdag. 

Þetta þýðir að ég neyðist til að halda upp á jólin og fagna nýja árinu eftir 7. janúar þegar ég verð komin heim.  Ef einhver er til í að fanga nýja árinu aftur með mér þá endilega láta mig vita..

Held ég sjái samt fram á einhver skróp í skólann á aðfangadag og jóladag þar sem planið er að fara í mat til Nínu á aðfangadagskvöld og á jóladagkvöld langar mig til Betlehem í jólagönguna.

2.janúar - 6.janúar verð ég í fríi.  Er að hugsa um að skella mér niður að Rauðahafi og ná mér í smá sól og hita áður en ég kem heim í veturinn. 

Ég á svo erfitt með að trúa hvað tíminn hefur liðið hratt.  Bara mánuður eftir og þá er ég farin... er strax farin að velta því fyrir mér hvort ég eigi að skrá mig í masterinn hérna úti, tvö ár eru örugglega lengur að líða en hálft.
Eva Balagan
5 athugasemdir